Í tilefni af réttardegi í Grýtubakkahreppi laugardaginn 6. sept. gefst fólki kostur á að gæða sér á berjaskyri í veitingasölunni í gamla Prestshúsinu í Laufási. Á sunnudeginum verður lummukaffi í veitingasölunni en þar er ávallt leitast við að bera fram mat úr héraði gegn vægu gjaldi. Við viljum vekja athygli á því að næsta helgi er næstsíðasta opnunarhelgi í Gamla bænum Laufási. Opnunartími í Laufási er alla daga til 15. sept frá 9-18.