Gamli bærinn í Laufási opnar dyrnar upp á gátt föstudaginn 15. maí kl 9.  Kaffihúsastemning mun ríkja í gamla Presthúsinu til kl 22 þennan fyrsta dag sumarsins þar sem ilmur nýbakaðs bakkelsis úr héraði mun fylla vitin og tertur, brauð og drykkir gæla við bragðlauka gesta.  Í sumar gefst gestum einstakt tækifæri til þess að fylgjast með endurbótum og uppbyggingu baðstofunnar, einni af aðal byggingu bæjarins. Torfhleðslumaður er við störf sem og smiðir sem láta hið gamla mæta því nýja í því efni sem unnið er með. Gamli bærinn í Laufási er í umsjón Minjasafnsins á Akureyri en í eigu Þjóðminjasafns Íslands , sem stendur fyrir endurbótum á honum.  Opnunartími er alla daga frá 15. maí -15. september frá kl 9-18. .