Afmælisganga um Naustaborgir fimmtudaginn 28. júní kl. 20.Í Naustaborgum er mikil náttúrufegurð, fjölbreyttar gönguleiðir, menningarminjar og fuglaskoðunarhús. Jón Birgir Gunnlaugsson, forstöðumaður umhverfismála Akureyrarbæjar og Jón Ingi Cesarson leiða göngugesti um eitt leyndasta útivistarsvæði Akureyringa. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 20 frá bílastæðinu efst í Ljómatúni. Gangan tekur um klukkutíma og er þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Það eru afmælisnefnd Akureyrarbæjar og Minjasafnið á Akureyri sem bjóða upp á þessar forvitnilegu gönguferðir í tilefni stórafmælisins öll fimmtudagskvöld í sumar.