Við fögnum nýju ári og þökkum öllum gestum okkar og velunnurum fyrir samvinnu og heimsóknir á nýliðnu ári. Þetta var stórt ár í sögu Minjasafnsins sem eins og allir vita fagnaði 50 ára afmæli. Afmælisbarnið sjálft tók svo mjög virkan þátt í afmælishaldi Akureyrarbæjar sem fyllti heil 150 ár. Það var því mikið um dýrðir á árinu og flugeldasýningarnar voru nokkrar. Efst í huga safnsins er þó þakklæti til gesta okkar og íbúar svæðisins eiga sérstakir skyldar fyrir að vera áhugasamir, hjálpfúsir og virkir þátttakendur í viðburðum þeim sem safnið stóð fyrir á afmælisárinu.