Hefur þú séð hvernig kindahausar eru sviðnir? Hefur þú fylgst með alvöru sláturgerð? Hefur þú smakkað heimagerða kæfu, slátur, kartöflurúgbrauð eða fjallagrasamjólk? Ef ekki þá er tilvalið að leggja leið sína í Gamla bæinn í Laufási laugardaginn 17. október milli kl 13:30 og 16 til þess upplifa gamla tíð með öllum skynfærum. Tóvinnufólk verður að störfum og  forvitnilegur haustmarkaður verður í skálanum. Lummukaffi verður til sölu í Gamla prestshúsinu og ljúf tónlist verður leikin af fingrum fram. Dagurinn hefst kl 13:30 með góðri samverustund í kirkjunni undir stjórn sr. Bolla Péturs Bollasonar.