Stofur Davíðshúss fyllast af ljóðum, tónum og fólki á Litlu ljóðahátíðinni í Davíðshúsi sem haldin er í fjórða sinn í Davíðshúsi, heimili skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Dagskráin er fjölbreytt sem fyrr með landsþekktu listafólki sem stígur fram á stofugólfið frá fimmtudegi til sunnudags 14.-17.nóvember.
Dagskráin hefst á fimmtudagskvöldið kl. 20 þegar bræðurnir Þórarinn og Elfar Logi Hannessynir flytja ljóðaleik úr bók Jóns úr Vör, Þorpið. Bókin olli straumhvörfum í íslenskri ljóðlist þegar hún kom út árið 1946. Hún var fyrsta ljóðabókin sem innihélt eingöngu óbundin ljóð og varð af nokkuð fjaðrafok. Með tímanum hefur hún unnið sér sess meðal merkustu ljóðabóka landsins.
Í ljóðaleiknum Þorpið segja listabræðurnir frá Bíldudal, Elfar Logi og Þórarinn Hannessynir, frá höfundi verksins og flytja ljóð úr Þorpinu í tali og tónum.
Á föstudagskvöldinu, kl. 20, les Gerður Kristný upp úr nýjustu bók sinni, Jarðljós, sem hlotið hefur frábæra dóma gagnrýnenda og enn betri viðtökur lesenda. Gerði Kristnýju þarf vart að kynna enda löngu landsþekkt og nýtur aðdáunar langt út fyrir landsteinana fyrir orðsnilld sína. Hún hefur notið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín þar með talin Íslensku bókmenntaverðlaunin. Jarðljós er 10 ljóðabók Gerðar Kristnýjar og eflaust verða einhver ljóð úr fyrri bókum með í för á föstudagskvöldið.
Síðdegis á laugardaginn fær afmælisbarnið Jónas Hallgrímsson rými í stofu Davíðs frá Fagraskógi. Jónas, ég og Davíð er dagskrá á persónulegu nótunum þar sem Vilhjálmur B. Bragason flytur ljóð og hugleiðingar um skáldin stóru sem hafa fylgt honum í gegnum lífið. Vilhjálmur flytur ljóð Jónasar og Davíðs sem eru honum hugleikin ásamt sínum eigin verkum. Dagskráin, sem hefst kl. 15, er bæði í tali og tónum eins og við er að búast af Vilhjálmi.
Litlu ljóðahátíðinni lýkur á nótnaborði flygilins í Davíðshúsi þegar píanóleikarinn Alexander Smári Edelstein flytur verk eftir Bach, Schubert, Chopin og Rachmaninoff.
Alexander lauk prófi við Tónlistarskólann á Akureyri og BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hann lauk meistaragráðu frá Conservatorium Maastricht í Hollandi árið 2023 undir handleiðslu professor Katiu Veekmans.
Alexander hefur komið fram á fjölda tónleika bæði sem einleikari og með leikari. Hann er nú sjálfstætt starfandi tónlistarmaður og píanókennari við Tónlistarskólann á Akureyri.
Óþarft er að taka fram að heimilismaðurinn Davíð tekur þátt með upplestri, þó ekki að handan heldur af hljómplötu.
Dagkráin í hnotskurn.
Fimmtudagurinn 14. nóvember kl. 20. Þorpið -ljóðaleikur í tali og tónum úr bók Jóns úr Vör - Þórarinn og Elfar Logi Hannessynir
Föstudagurinn 15. nóvember kl. 20: Jarðljóð.
Gerður Kristný les úr nýjustu ljóðabók sinni og eldri verkum.
Laugardagurinn 16. nóvember 11. kl. 15. Jónas, ég og Davíð.
– Dagskrá í tali og tónum með Vilhjálmi B. Bragasyni
Sunnudagurinn 17. nóvember kl. 16. Stofutónleikar
- Alexander Smári Edelstein, píanóleikari.
Aðgangsmiði 1500 kr – fyrir alla dagana
gildir einnig á Minjasafnið, Nonnahús og Iðnaðarsafnið út árið.
Ef þú átt nú þegar aðgangsmiða þá gildir hann auðvitað á Litlu ljóðahátíðina.
Húsið opnar hálftíma áður en dagskrá hefst.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús opið daglega 13-16
Iðnaðarsafnið opið daglega 13-16
Laufás lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Leikfangahúsið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Davíðshús lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Smámunasafnið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30