Vegna breytinga á sýningum safnsins er lokað á laugardaginn.Opnum aftur laugardaginn 19. nóvember þar sem handverkshópurinn Handraðinn fagnar 10 ára afmæli sínu með sýningu á starfi félagsins. 26. nóvember opnar næsta sýning safnsins verður um Þrettándagleði Þórs sem er  einn af mikilvægu dögum í hátíðarhaldi Akureyrar. Sýndar verða ljósmyndir, gripir og búningar sem tengjast þessum skemmtilega degi sem hefur verið haldinn síðan 1915.