Það ætti enginn að láta markaðsdaginn í Gamla bænum Laufási framhjá sér fara. Haldinn verður útimarkaður frá 14-17 með handverki, listmunum og matvöru úr héraði.Í Gamla prestshúsinu verða þjóðlegar veitingar til sölu sem renna eflaust enn ljúflegar niður við tóna frá Snorra Guðvarðarsyni.  Gamli bærinn og veitingasalan er opin daglega frá kl. 9-18.