Á Miðaldadögum gefst tækifæri til að upplifa fortíðina og verslunarstaðinn á blómatíma hans, hitta Gásverja, kynnast handverki og daglegum störfum jafnvel fá að prófa eitt og annað. Boðið er upp á leiðsagnir um fornleifasvæðið og tilgátusvæðið, sögulega stundir með Vandræðaskáldum. Það er einstök stemning í fjörunni við Gásir þar sem tilgátubúðirnar eru. Það slær hins vegar reglulega í brýnu milli bardagamanna Rimmugígs og Gásverjar bregða á með leik og söng. Gapastokkurinn verður óspart nýttur fyrir glæpamanninn og gefst gestum tækifæri til að grýta hann með eggjum. Þó ekki fúlum þó hann verði fúll. Vonandi verður hann ekki fyrir Gása-lækninum sem helst vill aflima alla, nema að seiðkonan hafi aðvarað fólk.
Auk viðburðanna verða fjölmargir handverksmenn að störfum og tónlistarfólk glæðir svæðið lífi í takt við leikþætti og taktfastan slátt eldsmiða. Steinsmiður mætir á Gásir í fyrsta sinn sem mótar kléberg að fyrirmynd jarðfundinna gripa. Annálaritari Gása hanterar skinn og saman búa gestir og Gásverjar til nýjan kafla í annál þessarar skemmtilegu fortíðarhátíðar.
Þú hefur heyrt um 2 fyrir 1 en hvað með 3 fyrir 1? Aðgangsnistið gildir nefnilega í alla þrjá miðaldadagana sem eru 20.-22. júlí frá kl. 11-17.
Fylgist með facebooksíðunni miðaldadagar á Gásum.
Sjáumst á miðöldum.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús opið daglega 13-16
Iðnaðarsafnið opið daglega 13-16
Laufás lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Leikfangahúsið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Davíðshús lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Smámunasafnið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30