Á degi íslenskrar tungu, þriðjudaginn 16. nóvember, bjóða Nonnahús og Minjasafnið á Akureyri  í opið hús í Ketilhúsi fyrir stóra og smáa í tilefni af afmæli barnabókarithöfundarins og jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar - Nonna. Frá kl 9:00-15:30 eru börnin sérstaklega boðin velkomin í Ketilhús og seinni part dags kl 16:30-18:00 verður afmælisdagskrá Nonna til heiðurs. þar munu þau Helga Birgisdóttir, doktorsnemi í bókmenntum, og Jón Hjaltason, sagnfræðingur, fjalla um ævintýri Nonna, uppvöxt hans og umhverfi.  Hlökkum til að sjá ykkur! 

NONNAHÚS og Minjasafnið á Akureyri bjóða börnum á öllum aldri að koma í heimsókn í Ketilhúsið í Listagilinu á Akureyri  milli kl 9.00 og 15:30. Þar verður hægt að skoða sýninguna  „Pater Jón Sveinsson en kallaðu mig Nonna“  sem gerð var í tilefni af 150 ára afmæli hans 2007. Auk þess gefst gestum kostur á því að  skrifa eða teikna á vegg  það fyndnasta, skemmtilegasta eða það hræðilegasta sem þau muna eftir úr bókunum.  Hægt verður að skoða brot af skólaverkefni sem 1. bekkur  í Giljaskóla 2009 ásamt leikskólabörnum á Tröllaborgum og Kiðagili gerðu árið 2009. 

Seinni part dags kl 16:30 – 18:00 verður  AFMÆLISDAGSKRÁ  Nonna til heiðurs þar sem Helga Birgisdóttir, doktorsnemi í bókmenntum við Hí, fjallar um tengsl Nonnabókanna við hina evrópsku barnamenningu og barnabókahefð. Jón Hjaltason, sagnfræðingur, mun leiða gesti um sannleikann um uppvöxt og það umhverfi sem Nonni ólst uppí.  Auk þess sem lesin verða upp velvalin brot af ævintýrum Nonna og formaður Nonnavinafélagsins, Brynhildur Pétursdóttir, óskar afmælisbarninu til hamingju með daginn.   

Nonni var á sínum tíma einn þekktasti rihöfundur þjóðarinnar en með skrifum sínum og fyrirlestrum kynnti hann Ísland, sérstaklega þá Akureyri og Norðurland, um víða veröld. Bækur hans voru gefnar út á yfir 30 tungumálum en færri vita að Nonni þótti einstaklega skemmtilegur fyrirlesari og hélt um 5000 fyrirlestra, flesta í Evrópu en einnig í Bandaríkjunum og í Japan.