Fjölmargir gestir lögðu leið sína í Nonnahús um páskana. Enginn átti þó von á að rekast á Nonna, Manna og Júlla smaladreng í eigin persónu. Þeir höfðu þó mælt sér mót í Nonnahúsi á skírdag. Þetta voru þeir Garðar Thór Cortes (Nonni), Einar Örn Einarsson (Manni) og Jóhann G. Jóhannsson (Júlli smaladrengur) sem léku í sjónvarpsþáttunum Nonni og Manni.Þættirnir voru samevrópskt verkefni en Þjóðverjar áttu hvað stærstan þátt í framleiðslunni enda hafa Nonnabækurnar löngum verið vinsælar þar í landi. Eftir sýningu þáttanna bárust leikurunum ógrynnin öll af aðdáendabréfum og aðsókn í Nonnahús jókst svo um munaði. Félagarnir hittust einmitt í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá framleiðslu þáttanna. Jóhann G. Jóhannsson tók við þetta tilefni upp efni sem sent var út föstudaginn langa en það má heyra í þættinum frá A til J á ruv.is. Enn þann dag í dag eiga þættirnir um Nonna og Manna dygga aðdáendur og mikið verið spurt um þá. Þættirnir eru fáanlegir á DVD á þýsku en starfsfólk Minjasafnsins, Zontaklúbbur Akureyrar, sem til fjölda margra ára rak Nonnahús, og aðrir dyggir aðdáendur Jóns Sveinssonar skora á sjónvarpið að endursýna þessa skemmtilegu þætti.

Á meðfylgjandi mynd sem tekin var í Nonnahúsi, við þetta merka og skemmtilega tilefni, má sjá þá félaga Garðar Thór Cortes (Nonni), Einar Örn Einarsson (Manni) og Jóhann G. Jóhannsson (Júlli, smaladrengur) sem léku í sjónvarpsþáttunum Nonni og Manni.