Þekkir þú ... er ljósmyndasýning þar sem þú getur lagt þitt af mörkum. Þekkir þú staðinn, atburðinn, fólkið, húsið eða bílinn?
Býrð þú yfir sögu sem tengist myndefninu?
Minjasafnið á Akureyri býr yfir rúmlega 3.000.000 mynda. Mörgum þeirra fylgja jafnvel engar upplýsingar eða okkur skortir þekkingu á myndefninu. Kannski býrð þú yfir henni og getur lagt okkur lið?
Minjasafnið stendur árlega fyrir sýningu sem þessari og er hægt að sjá eldri sýningar á vef safnsins.
Á þessari sýningu eru myndirnar m.a. úr safni KEA, einnig eftir áhugaljósmyndarann Hartman Eymundsson og ýmsa aðra.
Sýningin er í suðursal Minjasafnsins og stendur frá 19. febrúar til 28. mars.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús opið daglega 13-16
Iðnaðarsafnið opið daglega 13-16
Laufás lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Leikfangahúsið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Davíðshús lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Smámunasafnið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30