Á laugardagsmorgun var afmælisgjöf Norðurorku til Akureyrarbúa "opnuð" þegar  söguskilti á gömlu Akureyri voru afhjúpuð með viðhöfn. Minjasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa og framkvæmdadeild Akureyrar unnu að undirbúningi, hönnun og framkvæmd þessa fróðlega og skemmtilega verks í góðri samvinnu við Teikn á lofti og Jón Hjaltason auk Afmælisnefndar Akureyrarbæjar.