Afmælisganga um Innbæinn fimmtudaginn 12. júlí kl. 20Gengið verður um Gömlu Gróðrarstöðina norður Aðalstræti í átt að Minjasafnsgarðinum. Skoðaður verður trjágróður og annað markvert sem á vegi verður. Hallgrímur Indriðason leiðir gönguna.  Farið verður frá Gömlu Gróðrarstöðinni stundvíslega kl. 20. (Gamla Gróðrarstöðin er innst við Krókeyri innan við Iðnaðarsafnið og bakvið Mótorhjólasafnið). Gangan tekur um klukkustund og er þátttakendum að kostnaðarlausu.   Afmælisnefnd Akureyrarbæjar og Minjasafnið á Akureyri bjóða upp á göngur öll fimmtudagskvöld í sumar.