Afmælisganga um Glerárgil og nágrennifimmtudaginn 9. ágúst kl. 20.Baldur Dýrfjörð leiðir gönguna og fræðir göngugesti um nýtingu Glerár og Glerárdals í fortíð og nútíð og segir frá starfsemi Norðurorku á svæðinu – vatnsveitu, rafveitu og hitaveitu.
Safnast verður saman sunnan við gámastöðina á Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg (á svæðinu þar sem áramótabrennan er árlega). 
Gangan tekur um klukkustund og er þátttakendum að kostnaðarlausu. 
Afmælisnefnd Akureyrarbæjar og Minjasafnið á Akureyri bjóða upp á göngur öll fimmtudagskvöld í sumar.