Spítalinn í nýju húsi við Spítalaveg, sem byggt var á árunum 1898-1899 eftir teikningu Guðmundar Hannessonar héraðslæknis. Viðbygging úr steinsteypu var reist árið 1920. Þegar spítalinn var rifinn um 1955 voru allir máttarviðir hans fluttir upp í Hlíðarfjall og eru þar burðarstoðir í skíðahótelinu. Læknishúsið til vinstri. Þar bjó Guðmundur Hannesson læknir frá 1900-1908 og síðan Steingrímur Matthíasson til ársins 1936. Til hægri er Spítalavegur 8, hús Stefáns Stefánssonar skólameistara, byggt árið 1907 og efst til hægri er Spítalavegur 15, 17 og 19, byggð 1906 og 1907.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús opið daglega 13-16
Iðnaðarsafnið opið daglega 13-16
Laufás lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Leikfangahúsið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Davíðshús lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Smámunasafnið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30