- 61 stk.
- 16.02.2021
Það eru fáir dagar sem setja jafn mikinn svip á bæjarlífið á Akureyri og öskudagur. Þannig hefur það líka lengi verið. Börnin vakna snemma klæðast skrautlegum búningum og mynda hvert öskudagsliðið af öðru. Liðin arka um bæinn og heimsækja fyrirtæki, verslanir og stofnanir þar sem þau bjóða fram söngva í skiptum fyrir góðgæti. Flestir leggja metnað sinn í lagaval og fagran söng og af þeim sökum hafa farið fram margar fjörlegar æfingar dagana á undan. Uppskera þeirra verður einnig mjög ríkuleg þó deila megi um næringarfræðilegt gildi hennar. Eitt er víst að í febrúar eru nammidagar einum fleiri en venjulega.
Myndirnar eru úr safni KEA, frá ýmsum ljósmyndurum dagblaðsins Dagur og úr einkasöfnum.