Opið í Nonnahúsi laugardaginn 14. nóvember 13-16

Lesa meira

  Árleg jólasýning safnsins fjallar að þessu sinni um hvernig talið var niður til jóla. Verið velkomin - munið árskortið
Lesa meira

Leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin frú forseti?

Lesa meira

Í heimsókn hjá Helgu

Laugardaginn 7. nóvember  kl. 14:00 opnar ljósmynda- og sögusýningin „Í heimsókn hjá Helgu” á eftir myndlistarkonuna Dagbjörtu Brynju Harðardóttur Tveiten. Sýningin fjallar um líf og tilveru Helgu Jónsdóttur 94 ára frá Syðstabæ í Hrísey, alþýðukonu sem hefur lifað tímana tvenna. Sýningin gefur innsýn í líf einstakrar konu sem hefur farið í gegnum lífið af æðruleysi og lífsgleði.Aðgangur ókeypis á opnunina.
Lesa meira

Fyrsti vetrardagur opið 12-16

Veturkonungur og öll hans hirð verða boðin velkomin til Akureyrar n.k. laugardag. Boðið verður upp á fjölskylduvænar leiðsagnir um allar sýningar safnsins, vetrarratleik um söfnin og laugardagsnammi eins og það gerðist gott í gamla daga.                                       Farið verður í léttar og skemmtilegar leiðsagnir um sýningarnar Ertu tilbúin, frú forseti? kl. 13; um ævintýraheim kortanna kl. 14 og Akureyri bæinn við Pollinn með augum Vilhelmínu Lever, sem fyrst kvenna kaus í opinberum kosningum. Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir töfrar fram seiðmagnaða vetrartóna með sellói og söng kl. 15. Enginn fer úr safninu án þess að setja upp orðu að eigin vali og gerð enda föndurstöð til staðar. Já og leikhús landkönnuðarins. Sjón er sögu ríkari! Í Nonnahúsi er sýning um Sigríði móður Nonna. Einnig verður hægt að senda ömmu póstkort og ekki væri verra að segja hvað hefur gerst frá því á sumardaginn fyrsta þegar fjölmargir sendu ömmu sumarkveðju. Aðgangur ókeypis Gleðilegan vetur. Hlökkum til að sjá ykkur, Starfsfólk Minjasafnsins á Akureyri  
Lesa meira

Lesa meira

Lesa meira

Lesa meira

Opið alla daga frá 13-16 í vetur

Láttu þessa frábæru sýningu ekki framhjá þér fara. Munið árskortin.
Lesa meira

Fullt hús skálda á Hjalteyri 18.9. kl. 21-23

Spennandi og öðruvísi ljóðadagskrá þar sem persónuleg tengsl skálda og áheyrenda eru í öndvegi. Meðal skálda sem koma fram eru Þórdís Gísladóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Lubbi klettaskáld, Urður Snædal, Birna Pétursdóttur, Stefán Bogi Sveinsson, Sigurður Ingólfsson, Ingunn Snædal, Kristian Guttesen, Vilhjálmur Bergmann Bragason, Hekla Björt Helgadóttir og fleiri þar á meðal Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.   Sjá nánar á síðu Litlu ljóðahátíðarinnar  
Lesa meira