08.05.2008
Franski dúettinn Triskyn verður með tónleika í Minjasafnskirkjunni á Akureyri laugardaginn 3. maí og fimmtudaginn 8. maí kl. 20:30. Á tónleikunum munu þeir Jean-Marc Plessy og Sébastien Prats kynna glænýjan geisladisk sinn, Triskyn – the meeting of elements. Í tónlist þeirra félaga mæta ímynd einstaks landslags og náttúrulegra frumafla Íslands tónlist sem er flutt með söng og indverskri þverflautu úr bambus, afrískri fingrahörpu, vindlurk og gítar. Aðgangseyrir 1500 kr.
Lesa meira
28.04.2008
Öll söfnin verða opin frá 11-17. Eru gersemar í þínum fórum? Sérfræðingar Minjasafnins munu greina muni gesta frá kl 14-16:30. Í Laufási verður leiðsögn um Gamla bæinn og kynning verður á torfhleðslu fyrir gesti og gangandi frá kl 13:30-16. Boðið verður uppá kaffi/kakó og pönnsur. Í Nonnahúsi munu þær Svanhildur Arna Óskarsdóttir og Auður Pálsdóttir úr Síðuskóla lesa upp úr bókum um Nonna. Hér má sjá dagskrána á eyfirska safnadeginum.
Lesa meira
22.04.2008
Fjölskyldustemmning mun ríkja á sumardaginn fyrsta hjá okkur frá kl 14-16. Í Minjasafnskirkjunni kl 14 verður fluttur fróðleikur í tilefni dagsins og sumarið verður sungið inn með hárri raust kirkjugesta. Á flötinni neðan við safnið verður farið í útileiki. Lummuangan og kakóilmur munu fylla vit gesta og veitingarnar verða reiddar fram í boði STOÐvina safnins. Vetrinum verður blásið hressilega burt með sápukúlublæstri með hjálp barna og fullorðna kl 16. Það er nóg um að vera og því upplagt fyrir mömmur og pabba, ömmur og afa, langömmur og langafa, frænkur og frændur að gera sér glaðan dag með börnunum á Minjasafninu á Akureyri. Það eru Minjasafnið á Akureyri, STOÐvinir Minjasafnins, St. Georgsgildið Kvistur og Akureyrarstofa sem standa að barnaskemmtuninni á Minjasafninu. Hér má sjá dagskrána.
Lesa meira
22.04.2008
Vertu gestur í heimabyggð og komdu í heimsókn í öll söfnin í Eyjafirði. Söfnin verða opin þennan laugardag frá 11-17 og eitthvað spennandi verður um að vera í í þeim öllum. Rútuferðir með leiðsögn verða í boði þátttakendum að kostnaðarlausu. Önnur rútan fer frá Akureyri til Siglufjarðar og tilbaka en hin fer fram í fjörð og út í Gamla bæinn Laufás og endar aftur á Akureyri. Að sjálfsögðu verður farið í söfnin og sýningar skoðaðar á leiðinni. Safnastrætó verður á Akureyri. Nánari dagskrá mun birtast á síðunni á allra næstu dögum. Fylgist með!!
Lesa meira
01.04.2008
Eftir viðburðarríkt afmælisár heldur rithöfundurinn og jesúítapresturinn Jón Sveinsson, Nonni, áfram að vekja verðskuldaða athygli. Fimmtudaginn 10. apríl verður á dagskrá Rásar 1 útvarpsþátturinn Íslands göfugasti sonur - Nonni og Þýskaland, eftir Arthur Björgvin Bollason. "Í þættinum er fjallað um tengsl Jóns Sveinssonar við Þýskaland, en hann samdi flestar bækur sínar á þýsku. Nokkrir samtímamenn segja frá kynnum sínum af honum og flutt gamalt viðtal við mann sem var fylgdarsveinn Nonna til Íslands á Alþingishátíðina 1930." Sjá ruv.is
Lesa meira
27.03.2008
Fjölmargir gestir lögðu leið sína í Nonnahús um páskana. Enginn átti þó von á að rekast á Nonna, Manna og Júlla smaladreng í eigin persónu. Þeir höfðu þó mælt sér mót í Nonnahúsi á skírdag. Þetta voru þeir Garðar Thór Cortes (Nonni), Einar Örn Einarsson (Manni) og Jóhann G. Jóhannsson (Júlli smaladrengur) sem léku í sjónvarpsþáttunum Nonni og Manni.
Lesa meira
19.03.2008
Svo vel hefur gengið að fá upplýsingar um ljósmyndir á sýningunni Þekkir þú... fjölbreytileika mannlífsins að bætt hefur verið við 14 óþekktum myndum. Þær eru flestar úr safni áhugaljósmyndarans Maríu Pétursdóttur og eru frá því eftir 1945.Á safninu er einnig að finna tvær aðrar áhugaverðar sýningar: Akureyri-bæinn við Pollinn og Eyjafjörð frá öndverðu.Aðgangur ókeypis. Opið er um páskana: skírdag, laugardaginn 22. mars og annan í páskum frá 14-17. Einnig er opið á sama tíma í Nonnahúsi.
Lesa meira
14.03.2008
Örsýning Minjasafnins, skíði – skautar – sleðar, í samstarfi við Pennann-Eymundsson og Skíðaþjónustuna var opnuð 14. mars. Hún er sett upp í tilefni af páskum þegar vetraríþróttir eru iðkaðar sem aldrei fyrr bæði af heimafólki og gestum. Í glugga Pennans-Eymundson eru ljósmyndir í bland við fatnað, tæki og tól sem þarf við slíka iðju bæði gömul og glæný. Í búðinni er einnig ljósmyndasýning á tölvuskjá með stemningsmyndum sem flestar eru frá Akureyri.
Lesa meira
13.03.2008
Laufáshópurinn stendur fyrir mörgum áhugaverðum námskeiðum. Næstu námskeið eru 31. mars og 1. apríl. Örnámskeið undir Kerlingu í landi Fífilbrekku EyjafjarðarsveitVattarsaumur 31. mars kl. 17-20.Smokkar/handstúkur 1.apríl kl. 17-20.http://laufashopurinn.akmus.is/namskeið.htm
Lesa meira
08.03.2008
Vissir þú að ljósmyndir voru teknar á silfurplötur eða glerplötur sem passa þurfti uppá að brotnuðu ekki. Laugardaginn 8. mars kl 14 mun Hörður Geirsson, sérfræðingur ljósmyndadeildar Minjasafnins á Akureyri, spjalla við gesti safnins um ljósmyndatækni fyrr og nú. Aðgangur ókeypis.
Lesa meira